Sigmundur Einar Másson

Simmabréf Annað tölublað

Hérna kemur tölublað númer tvö en ég byðst afsökunar á að hafa ekki sett hring númer 4 inn en það kom eitthvað upp og ég veit ekki hvað ég gerði öðruvísi en ég mun rifja upp hringinn og setja hann hérna inn eins fljótt og ég get.

Sumir hafa lent í veseni að opna fréttabréfið í gegnum bloggið en þá er best að hægri smella á fréttabréfið og velja view image og þá opnast það betur.

Kveðja

Simmi


Þriðji hringurinn!!!!

Eftir að hafa spilað á 76 í gær þá var ég staðráðinn í því að gera betur í dag. Ég átti út kl 8.50 á fyrsta teig. En svona var hringurinn minn
 

1. hola Par 4 379 yr

Upp í móti hola ég tók driverinn og átti 101 yr eftir sló milli wedgin 3 og hálfa meter frá og púttið breikaði aðeins meira en ég hélt og ég fékk par.

2. hola Par 4 424 yr

Smá dogleggur til vinstri og ég sló 3 tré og átti 172 yr eftir, sló ég létt 7 járn en boltinn flaug of langt og ég átti 14 metra pútt til baka eftir og ég átti gott 2 pútt.

3 hola Par 4 290 yr
Ég sló 4 járn af teignum til að fara ekki í brautarbönker, átti 81 yr eftir sló 58 gráðurnar 2 og hálfan metra yfir pinnan. Ég átti góða tilraun fyrir fuglinum.  

4 hola Par 3 205 yr

Þessi hola var spiluð af fremri teig í dag og pinninn alveg hægra megin. Ég sló þunnt högg til hægri og lennti boltinn tvisvar í röffinu og svo rúllaði hann á göngustígnum og fór out of bounds. Seinni boltan sló ég gott gaolfhögg rúma 5 metra frá og rétt missti bogieið.

5 hola Par 5 526 yr
Átti teighögg með fram hægri partinum á brautinni og endaði í röffinu en boltinn sat ágætlega. Ég tók 6 járn en höggið var 201 yr. Sló ég boltann vel og hann lennti 189 yr og rúlaði 6 metra áfram og sían niður smá halla en ég átti pútt fyrir erni. Ég skildi púttið eftir 10 cm of stutt og fuglinn kominn.

6 hola Par 4 469 yr

Ég átti gott teighögg og var í röffinu 170 yr frá sló 8 járn og sló það aðeins of þunnt var meter of stuttur á flötina og fór í bönkerinn sló aðeins of langt og endaði rétt í röffinu. Ég átti gott vipp og ég fékk bogie.

7 hola Par 4 469 yr
Átti gott teighögg átti 152 yr eftir teighöggið. Ég sló 9 og var 4 metrum of stuttur og átti góða tilraun á fuglinn en hann datt ekki.

8 hola Par 3 153 yr

Ég átti gott teig högg eða svona 2 metra frá og pútti rétt lak framhjá.

9 holu Par 5 547 yr

Ég átti fínt teighögg og lagði upp 100 yr frá og sló milliwedgin rúmlega 5 metra frá og rétt missti fuglinn.

10. hola Par 4 319 yr

3 Tréð af teignum og átti 68 yr eftir í stöng og flaug 58 gráðunum yfir flötina og átti mjög gott vipp og fékk klassa upp and down.

11. hola Par 5 523 yr

Ég sló teig höggið niður vinstri helminginn alveg eins og í fyrsta hringun ég var rúma 30 cm frá þar sem ég var í frsta hringnum. sló 7 járn á móti vindinum og rétt missti flötina en auðvelt vipp og og fuglinn kominn.

12 hola Par 3 201

Þessi hola var 205 yr í smá meðvindi. Ég sló 5 járn og endaði fremst á flötinni og gott tví pútt. 

13 hola Par 4 421 yr
Ég sló 3 tréð og það fór í trén vinstra meginn og ég þurfti að leggja upp því ég gat ekki sleggið á flötina í 2 höggum. Ég átti gott 3 högg og það endaði rúma 3 metra frá af 114 yr færi. Ég missti púttið og ég var kominn 2 yfir aftur.

14 hola Par 4 425 yr
Ég sló mjög gott teig högg og átti 112 yr eftir og sló milli wedginn og endaði rúma 10 metra frá eftir að hafa spinnað boltan rúma 5 metra til baka. en einfalt tví pútt.

15 hola Par 4 480 yr

Þessi hola spilaðist í mótvindi og sló ég mjög gott drive og átti rúma 165 yr eftir og sló létt 6 járn við hliðina á stönginni eða rúma 7 metra frá. Einfalt par.

16 hola Par 5 537 yr
Teighöggið var ekki gott og endaði það out of bounds þannig að ég þurfti að tía aftur sló það fullkomið og síðan 3 járnið rúma 6 metra við hliðina á flötinni og átti ég gott vipp og gott bogie.


17 hola Par 3 171 yr

Sló 8 járnið fremst á flötina og var svona 14 metra frá og einfalt tví pútt og par.

18 Hola Par 4 479 yr

Mjög góð par 4 hola löng og góð en ég átti slæmt teig högg hægra meginn en á ágætis stað ég sló 7 járn af 187 yr færi og fékk flyer en endaði rétt hægra meginn við flötina  vippið var fínt eftir að boltinn var ekki í góðrilegu og átti ég rúma 3 metra eftir og missti það og bogie komið.

Þassi hringur var fínn eins og hinir hringirnir var að slá fínt en átti 2 slæm högg sem kostuðu mig 4 högg. En ég er jafn í 34 sæti og einn hringur eftir. Þarf ég bara að koma með fínan hring á morgun en ég er búin að finna út hvaðan þessi slæmu högg koma þannig að dagurinn á morgun ætti að verða betri.

Takk fyrir mig
Simmi




Ég var að sló mjög vel og þess má geta að ég hitti 13 flatir í regulaition í dag en einnugis 12 í gær þannig að þessar 5 holur skemmdu mikið fyrir mér. En á morgun verða ákvarðannatökurnar að verða betri

Annar hringurinn! Rúsíbani

Eftir að hafa spilað einn yfir í gær þá var annar hringurinn í dag. Ég átti á teig kl 8.40 og byrjaði ég aftur á 10 teig. Þegar ég byrjaði var ekki mjög heitt eða hitastigið var rétt rúmar 16 gráður og það var smá úði.

10. hola Par 4 319 yr
Ég tók aftur 3 tréð en núna pullaði ég það og fór í röffið vinstra megin en átti rúma 99 yr eftir úr upp í móti legu. Ég sló gott högg og endaði boltin rúma 5 metra frá. Ég missti púttið naumlega.

11. hola Par 5 523 yr
Ég sló teig höggið niður hægri helming brautarinnar til að eiga greiða leið að flötinni í tveimur og átti ég 236 yr eftir. Ég sló 3 hybridið mitt og lennti fremst á flötinni rúma 8 metra frá. Ég skildi púttið eftir rúma 30 cm of stutt og fyrsti fugl dagsins kominn.

12 hola Par 3 201

Þessi hola var 205 yr í smá meðvindi. Ég sló 5 járn og smell hitti það og lennti rúma 4 metra frá beint hinu megin við stöngina. Ég átti góða tilraun á fuglinn en ég krækti púttið.

13 hola Par 4 421 yr

Smá dogleggur vinstri og tré vinstra megin og vatn hægra megin. Ég tók 3 tré hitti það beint og svo tók vindurinn hann og boltinn rétt endaði í hliðarvatnstorfæru. Ég reyndi að slá boltann upp úr en ég náði ekki að slá boltan alla leið upp úr. Ég tók víti eftir það og þá þurfti ég að fara rúma 25 yr til baka og droppa í röffi sem gerði það að verkum að ég átti 215 yr eftir upp í móti á móti vindi og í röffi þannig að ég lagði bara upp. Fyrir 5 höggið átti ég 119 yr eftir og sló ég léttan pw og fór ég rúma 8 metra fram yfir pinnan og ég missti það pútt og ég fékk 7 eða triple bogie.

14 hola Par 4 425 yr
Ég sló gott teig högg og átti 138 yr eftir og sló 9 en hitti það vel og ég átti 4 metra tilraun fyrirfugli en ég missti það fyrir neðan holuna eftir að ég hitti púttið þunnt.

15 hola Par 4 480 yr

Þessi hola spilaðist í mótvindi og sló ég mjög gott drive og átti 168 yr eftir og sló ég 6 járn rúma 7 metra frá og missti þetta pútt rúman halfan meter vinstra megin en það var mikið breik í púttinu.

16 hola Par 5 537 yr

Teig höggið niðri í móti í með vind. Holan liggur í dogleg til vinstri. Ég sló 3 tréð í draw með fram dogleggnum og endaði boltin 244 yr frá pinna . Annað höggið sló ég með 2 hybrid  og ýtti því langt til hægri því boltinn var fyrir ofan fæturna og það var vatn vinstra megin við flötina. Ég átti mjög gott vipp af 39 metra færi og setti það rúman meter frá annar fugl dagsins kominn.


17 hola Par 3 171 yr

Upp í móti par 3 hola og sló ég 7 járn og sló ég mjög gott högg og endaði ég um 50 cm frá og þriðji fugl dagsins kominn og ég kominn á parið eftir að hafa fengið tripple.

18 Hola Par 4 479 yr

Mjög góð par 4 hola löng og góð en ég slæmt teig högg sem fór í hliðar vatns torfæru vinstra megin og sló ég mitt 3 högg inn á af 190 yr færi en átti ég svo 24 metra pútt vegna þess að ég gat ekki slegið á vinstri helming flatarinnar vegna tré sem var fyrir. Ég átti gott pútt og skolli staðreynd og einn yfir eftir 9 með 7 flatir hittar og 3 birdie. Ekki gott en í lagi.

1. hola Par 4 379 yr

Upp í móti, sló driver og átti rúma 82 yr eftir og setti það fremst á flötina og átti ég gott að pútt og létt par.

2. hola Par 4 424 yr

Smá dogleggur til vinstri og ég sló 3 tré og átti svo 149 yr eftir og slo ég 9 járnið rúma 12 metra frá og átti ég gott að pútt og létt par.

3 hola Par 4 290 yr
Stutt hola í smá dog leg til hægri og hérna sló ég 3 járn í brautarbönker og átti ég 99 yr eftir. Ég sló milli wedgin og boltin flaug 103 yr og hoppaði í hliðarvatstorfæru og þurfti ég að taka víti og vipið eftir það var fínt rúman meter og ég ofreiknaði hallan og ég missti púttið double bogie og ég kominn 3 yfir.

4 hola Par 3 205 yr

Þessi var 213 yr í dag og sló ég 5 járn fremst á flötina og rúma 5 metra frá og ég rétt missti af fuglinum.

5 hola Par 5 526 yr

Ég átti fínt teig högg en aðeins of mikið til vinstri og gat ég ekki reynt á flöt í 2 og þurfti ég að leggja upp en ég átti 99 yr eftir og ég sló 58 gráðurnar og lennti 4 metra frá. Ég krækti púttið og ekki gott par á þessari.

6 hola Par 4 469 yr

Ég átti gott teighögg og átti ég 168 yr eftir og ég sló létt 6 járn á móti vindinum og kom ég mér í fínt færi en missti fuglinn.

7 hola Par 4 469 yr

Misst teig höggið aðeins til hægri og var í röffinu en með fína legu. Ég átti 173 yr og sló 8 járnið og fékk ekki  flyer og boltinn flaug aðeins of stutt og lennti í vatni. Ég droppði 80 yr frá og missti svo 3 metra tilraun fyrir bogie.

8 hola Par 3 153 yr

Ég átti gott teig högg eða svona 5 metra frá og rúllaði góðu pútti í eftir að boltinn breikaði rúman meter til hægri.

9 holu Par 5 547 yr

Mjög sérstök hola en ég sló 3 tréð og tók vindurinn það og lennti ég á göngu stíg nokkrum sinnum og hoppaði boltin rúma 50 metra áfram og í hliðarvatnstorfæru. Ég lagði upp með 5 járni og skildi eftir rúma 82 yr, Ég átti gott inná högg og endaði rúman meter frá og setti svo parið í og 4 yfir pari staðreynd.

Ég var að sló mjög vel og þess má geta að ég hitti 13 flatir í regulaition í dag en einnugis 12 í gær þannig að þessar 5 holur skemmdu mikið fyrir mér. En á morgun verða ákvarðannatökurnar að verða betri

Fyrsti Hringurinn!!!!!

Í dag spilaði ég minn fyrsta hring í Pre Qualifying fyrir PGA mótaröðina.
Ég átti teig klukkan 9.30 á 10 teig. Ég mætti á svæðið rétt rúmlega hálf 8 þegar félagi minn Billy Dressler vildi mæta því hann átti teig rúmum klukkutíma á undan mér. Ég slappaði af í bílnum í rúman klukkutíma eða þangað til klukkan var 8.30. Það var sma rigning þegar ég byrjaði að slá. En núna ætla ég að fara yfir allan hringinn og skrifa um öll höggin mín.

10. hola Par 4 319 yr

Þessi hola er upp í móti og ég tók 3 tré til að koma mér í gott færi fyrir fullt högg inn á greenið. Fínt högg og ég átti eftir 103 yr smá upp í móti. Annað höggið hitti ég fínt og boltinn endaði einn og hálfan meter frá. Púttið breakaði ekki eins mikið og ég hélt og ég rétt krækti holuna.

11. hola Par 5 523 yr

Slærð teighöggið aðeins niður í móti og ég hitti teighöggið rosalega vel og ég átti bara 163 yr eftir fyrir annað höggið á þessari par 5 holu. Annað höggið fór rúma 7 metra yfir holuna með áttuni og ég tvípúttaði og fyrsti fuglinn kominn.

12 hola Par 3 201

Þessi hola var 211 yr í dag og smá meðvindur og ég sló fullt 5 járn og lennti um 8 metra frá og rúllaði svona 5 metra frá og síðan datt púttið og annar fugl kominn.

13 hola Par 4 421 yr

Smá dogleggur vinstri og tré vinstra megin og vatn hægra megin. Ég tók 3 tré og hitti það ágætlega og ég átti 180 yr eftir fyrir annaðð höggið og sló ég 6 járn sem endaði rúmum 3 metrum og stutt og stoppaði í röffinu en flötinn er aðeins upphækkuð  og skildi ég vippið eftir 5 metrum of stutt og ég missti það pútt og fékk skolla.

14 hola Par 4 418.

Ég sló gott teig högg og átti 141 yr eftir og sló 9 en hitti það aðeins opið og boltinn endaði 10 metrum of stuttur á green. Síðan átti ég lélegt vipp og annar skolli kominn.

15 hola Par 4 480 yr

Þessi hola spilaðist í mótvindi og sló ég mjög gott drive og átti 193 yr í stöng en holan var aftast á flötinni. Fínt högg og rúma 8 metra frá og tví pútt tryggði mér par.

16 hola Par 5 537 yr

Teig höggið niðri í móti í með vind. Holan liggur í dogleg til vinstri. Ég smell hitti 3 tréð í draw með fram dogleggnum og endaði boltin 196 yr frá á braut. Annað höggið sló ég með 5 járni lennti boltinn vinstra megin á flötinni og rúllaði útaf. Ég átti gott vipp og annar fugl kominn í hús og ég er á einum undir eftir 7 holur.

17 hola Par 3 171 yr

Upp í móti par 3 hola og sló ég 7 járn og endaði fremst á flötinni og tryggði mjög gott pútt.

18 Hola Par 4 479 yr

Mjög góð par 4 hola löng og góð en ég átti mjög gott drive og átti rúma 162 yr eftir og sló 8 járn og endaði rúman meter fyrir framan flötina. Gott vipp og 15 cm vipp eftir og par og ég var einn undi pari eftir 9 holur.

1. hola Par 4 379 yr

Upp í móti, sló driver og átti rúma 86 yr eftir og setti það rúman meter frá og 4 fugl dagsins kominn og ég kominn 2 undir par.

2. hola Par 4 424 yr

Smá dogleggur til vinstri og ég sló 3 tré og átti svo 139 yr að stöng sló fullan pw og endaði 5 metra fyrir aftan flaggið og rétt missti fuglinn.

3 hola Par 4 290 yr
Stutt hola í smá dog leg til hægri og hérna sló ég 3 járn og átti eftir rúma 65 yr. Annað höggið fór 4 metra frá og ég rétt missti fuglinn.

4 hola Par 3 205 yr

Þessi var 213 yr í dag og sló ég 4 járn fremst á flötina og gott tví pútt og par staðreynd.

5 hola Par 5 526 yr

Sló mjög langt teig högg og átti 170 yr eftir og annað höggið sló ég með 7 járni og endaði 2 metrum of stutt á green og vippaði rúman meter frá. Púttið krækti og ég fékk par.

6 hola Par 4 469 yr

Hérna pullaði ég teig höggið og hann hoppaði out of bounds vinstra megin. En ég fékk gott par á seinni boltann á þessari erfiðu holu.

7 hola Par 4 469 yr

Misst teig höggið aðeins til hægri og var í röffinu en með fína legu. Ég átti 183 yr og sló 7 járnið og fékk flyer og boltinn flaug alveg yfir flötina og svo átti ég fínt vipp og setti svo 3 metra par pútt í.

8 hola Par 3 153 yr

Hérna sló ég 9 járn og hitti það opið og dálitið hátt þannig að ég endaði of stuttur og fór í bönker. Bönker höggið var ekki mjög gott og skolli var það.

9 holu Par 5 547 yr

Mjög sérstök hola en ég sló 3 tréð á braut en það er svona eyja sem lagt er upp á og svo lagði ég upp með 5 jarni og átti rúma 106 yr eftir og sló milliwedginn 102 yarda og rétt missti púttið fyrir fulgi á loka holunni.


Einn yfir loka niðurstaðan og ég ágættlega sáttur með sláttinn en sumar ákvarðanna tökur voru ekki góða og mun ég passa mig á morgun að gera þetta ekki aftur.
Ég vona að þetta hafi verið gaman að lesa .

Opnun á blog.simmimasson.com


Styrktarmót

Styrktarmót Sigmundar Einars

Mótið er styrktarmót vegna þátttöku hans á úrtökumóti PGA mótaraðarinnar.

Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokk.
Nándarverðlaun fyrir næst holu á 4. og 17. braut.

Punktakeppni

1.sæti Adams Driver Insight XTD 34.900. kr

2.sæti Úttekt hjá Málning 25.000. kr

3.sæti Adams Hana burðarpoki 17.900. kr

Höggleikur

1.sæti Adams Driver Insight XTD 34.900. kr

2.sæti 15 mynda DVDpakki frá myndform og hamborgarpakki fyrir 4 hjá Krydd í tilveruni. 27.000. kr

3.sæti Adams Hana burðarpoki 17.900. kr

Næst holu
4. holu Puma Pakki

17.holu Puma Pakki

Mótsgjald er 4000.kr en öllum er velkomið að styrkja Sigmund með frjálsum framlögum.

Sunnudagskvöld!!

Hver sem þú ert vertu velkominn á bloggið mitt!


Í dag kláraðist Sveitakeppni GSÍ og kepptum við um þriðja sætið og var sá leikur við GR.
Ég keppti við Þórð Rafn Gissurason og var þessi leikur mjög spennandi og byrjaði Þórður alveg þvílíkt vel og var kominn með fjóra fugla eftir 6 holur átti hann fimm holur eftir þær sex. Gekk mér fínt að komast aftur inn í leikinn og átti hann 3 eftir 9 holur. Svo átti hann 3 þegar við vorum búnir með 12 og svo átti hann eina eftir 15 og svo vann hann 16 sem gerði það að verkum að ég varð að vinna næstu 2 til að eiga séns. Þórður var óheppinn með annað höggið sitt á 17 og lennti aðeins of stutt og átti smá vipp eftir og hann náði ekki að fá par. Svo á 18 þá set ég um 6 metra frá og hann rúmum 3 metrum lengra frá og aðeins út í röffið og hann púttar aðeins of langt og ég rétt missi svo í minni tilraun og svo tekst honum ekki að setja parið í og þá er það orðin staðreynda að það þarf auka holur. Á fyrstu auka holu þá komum við okkur báðir í gott færi fyrir fugli og ég er með rúma 3 til 4 metra og hann svona 2 og hálfan meter og set ég mitt pútt í og Þórður missir.  Þetta er einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað því mikið var um fugla og ekki mörg mistök. En við tryggðum okkur í 3 sæti sem verður að teljast ok árangur.

Spilamennskan mín fín um þessa helgi og var ég að slá fínt en það besta voru púttin sem er mjög ánægjulegt því ekki hef ég verið að pútta vel undanfarnar vikur né mánuði. Þetta gerir allt mikið betra og þægilegra.

Næsta verkefni er úrtökumótið ef mér tekst að finna peninga fyrir mótinu og atvinnumennskuni en það er byrjar um miðjan sept og fer fram í dallas. Þangað til þá mun ég vera ða vinna mikið í að finna styrktaraðila sem vilja hjálpa til við að láta draum minn rættast.

Endilega ef einhver vil aðstoða þá er hægt að hafa samband við mig í emailinu simmi@simmimasson.com eða simmimasson@simnet.is


Takk kærlega

Simmi

 

Sveitakeppni GSÍ

Nú í dag var fyrsti dagurinn í Sveitakeppninni og þetta mun verða mín fyrsta færsla á þessari bloggsíðu. En dagurinn byrjaði með því að fara frá GKG klúbbhúsinu uppá Skaga. Fyrsti leikurinn var gegn NK og spilaði ég á móti Ólaf B Loftsson í single. Við byrjuðum á tveimur góðum teighöggum og náði ég að vippa nálægt og byrjaði ég daginn á góðum fugli. En síðan fékk ég 2 aðra á næstu 5 og var kominn 3 undir eftir 6 holur og var 4 holur upp í leiknum. Tapaiði ég svo 9 holunni og þá var ég 3 upp eftir 9 holur. Endaði þessi leikur á 16 holu þegar ég setti um 7 metra frá í tveimur á par 5 holu og var leikurinn Dormie fyrir það þannig að ég vann 3/2.  Við unnum þennan leik 5-0 og byrjaði titilvörn okkar mjög vel. 

Seinni leikur dagsins var ekki alveg eins góður og töpuðum við 4-1 á móti GR en ég vann  Stefán Má 1/0 eftir mjög góðan leik sem hafði marga fugla og mikið af góðum höggum.

Næsti leikur mun ver á morgun á móti GS en þeir eru búnir að spila vel og eru búnir að vinna báða sína leiki og verður þetta erfiður leikur því við verðum að vinna hann til að eiga séns á að komast í undanúrslit. Munum við byrja að spila kl 8.42 á morgun. En ég fékk 10 fugla í dag og nokkra skolla. Yfir það heila þá sl
ó ég fínt og vippaði vel en púttinn voru frekkar ásættanleg.

En veriðið sæl og vonandi kemur önnur færsla sem fyrst.

Simson


Velkomin

Þetta mun vera mitt alvöru blogg ég vona að þetta verði betra en öll hin.